04.06.2007 21:11:50 / diddi
þá fer maður loksins að mæta á klakann. lendi laugardaginn 9. júní
þar sem stefnan er tekin á Gullöldina.
»
04.06.2007 21:08:55 / diddi
þá fer maður loksins að mæta á klakann. lendi laugardaginn 9. júní
þar sem stefnan er tekin á Gullöldina.
»
17.04.2007 20:27:00 / diddi
ég fór á sunnudaginn í hjólatúr, smá hopperí og fleira skemmtilegt.
Nema hvað að við prófuðum nýtt hopp þar sem þarf að hoppa yfir tré
sem hefur oltið. Það þarf að ná þó nokkru spídi til þess að drífa
yfir og ekki má gleyma hæðinni svo maður krassi ekki beint á
kvikindið. Allavega reið ég á vaðið og fipaðist eitthvað flugið,
því mér tókst ekki að lenda með fæturna á pedulunum. Þannig að ég
hlammast niður með afturdekkið á milli fótana go eins og ykkru
kannski er orðið ljóst lenti ég á pungnum og tókst meira að segja
að stoppa hjólið alveg með pungnum, sitjandi á afturdekkinu. Eftir
örfáar sekúndur lá ég í jörðinni í fósturstellingu og var barasta
nokkuð hljóður miðað við aðstæður. Svo þegar heim var komið og tími
til kominn að fara í sturtu sá ég að ég hafði uppskorið rautt
bremsufar á aðra kúluna. Kannski spurning um að fjárfesta í
punghlíf líka.
»
10.04.2007 21:34:57 / diddi
haldiði að ég hafi ekki bara brotið jack stickið i outputinu
þannig að á morgun í hádegishléinu hefst operation jack-stick sem
inniheldur lím nál og brotið jack-stick. Annað hvort fer allt til
helvítis eða þá að ég mun dansa, gott ef ekki nakinn, um götur
Álaborgar.
»
06.04.2007 22:33:47 / diddi
komnar nokkrar myndir inn á eftirfarandi link
www.myspace.com/diddib
»
06.03.2007 21:37:34 / diddi
Jæja, þá er ég búinn að kaupa mér nýja tölvu og ætti
engum að koma á óvart að MacBook Pro varð fyrir valinu. Ekki fer ég
að downgradea allavega, það er nokkuð ljóst. Ætli maður hendi samt
ekki windows in svona fyrst það er möguleiki á því, líka svona til
að tékka á því hvað ´wow´ stýrikerfið á að geta gert svona kúl.
Aðalverkefnið er líka byrjað núna og erum við í samvinnu við
Maysound Technologies ApS og Aalborg Sygehus. Þetta er víst
eitthvað voða leyndarmálsverkefni því við þurfum að skrifa undir
þagnareið um að við megum engum segja neitt. En þetta verður samt
mjög skemmtilegt því við erum að vinna með í "nýju"
rannsóknarverkefni á sjúkrahúsinu sem snýst um hljóðmeðferð á
sjúkingum í sjúkrabílum. Við eigum sem sagt að hanna tæki sem
útilokar sjukrabílahljóið og spilar hljóð/tónlist fyrir sjúklinginn
svo hann fari ekki yfirum á stressi greyið.
Farinn að installa öllu í heiminum.
»
24.02.2007 19:31:12 / diddi
Djöfull var gaman að fara útí búð í dag. Það var ekki til:
Mjólk
Rúgbrauð
Samlokubrauð
Pulsubrauð
Maltbrauð
Egg
Pulsur
Hakk
Kjúklingabringur
Jógúrt
Sulta
Salat
Blómkál
Spergilkál
Sveppir
Gulrætur
Tómatar
Bananar
Paprika
Epli
Appelsínur
Kartöflur
En það var allt í lagi því ég var svo stálheppinn að sjá
slökkviliðið brjóta niður 10cm löng grýlukerti á 4. hæð,
exciting.
»
11.02.2007 18:58:58 / diddi
Jæja, ta er eg buinn ad henda inn nokkrum myndum fra tussvikunni
minni sem var ad lida. Nedst a listanum myndir. Tetta er hluti af
miniprojekti tar sem eg fekk uthlutad ad endurhann sitronupressu,
exciting
Ætla ad drulla mer heim ad horfa a kassann tvi tølvan er i
vidgerd.
»
19.01.2007 13:52:43 / diddi
jamm jamm. þá er bara að kíkja a klakann á sunnudaginn og fara að
smíða bað með pabba. næsta önn byrjar ekki fyrr en 1. feb þannig að
það verður sweet að koma heim án prófa hangandi yfir sér og ger
aekki neitt.
»
06.01.2007 09:26:46 / diddi
Mig dreymdi að Dóri bróðir væri farinn að deita einhverja gellu sem
var '91 módel, ég var svona 15 mín í draumnum að reikna út
aldursmuninn. Svo var ég kominn í sturtu og sé einhvern gæja vera
að sniglast fyrir utan heima. Hann snýr svo við og sækir
tennisspaða og ég sé að hann er að fara að brjóta gluggann í
anddyrinu. Þá hoppa ég úr sturtunni og fer inn til pabba og mömmu,
þar sem voru ca. 9 tennisspaðar, tek tvo spaða og segi að það sé
gaur að brjótast inn. Allt í einu fatta ég að þetta er sennilega
pabbi stelpunnar að koma að buffa Dóra þannig að ég hleyp fram og
mæti gaurnum á ganginum. Ég lem hann einu sinni í hendina þannig að
hann missir spaðann og svo tek ég hann og sný upp á hendina og ætla
að henda honum út, ekki með neinn spaða í hendinni. Þegar ég opna
út er öll fjölskyldan hans fyrir utan á hjólum og auðvitað með
hjálma eins og eitthvað plebba gengi. Ég halla mér aftur og kippi
upp spaða og segi að ég lemji hann í hausinn ef þau geri eitthvað.
Hendi síðan gaurnum út og stend með spaðann að ógna fólki. Svo
þegar bara einn á eftir að fara þykist ég ætla að lemja hann þannig
að hann beygir sig undan og flýtir sér í burtu.
Veit ekki hvort fólk hafi verið hrætt við spaðann því ég man ekki
eftir að ég hafi farið í föt þegar ég hoppaði úr sturtunni.
Þá er það mál afgreitt, en næst var ég kominn í sundlaug þar sem ég
synti við Steinar um kapp í kafsundi og tapaði með naumindum. Svo
sá steinar allt í einu Halldór vera að pissa upp að einhverri hurð
á tvíbýlishúsi og virtist hann vera frekar blekaður, riðaði allur.
Steinar öskraði á hann að hætta þessu rugli. Þá snéri Halldór sér
við með Becks dós í hendinni, ég var ekkert að pissa á hurðina
heldur dósina. En málið var að dósin var bara lokuð hjá kallinum.
Svo man ég ekki mikið meira en Halldór var allavega eitthvað meira
með stelpunni í sundlauginni og fólkið hennar var þar líka en gerði
ekki neitt. Ætli ég hafi ekki bara verið ennþá nakinn. Það var samt
töff við þessa sundlaug að það voru brekkur i vatninu.
»
17.12.2006 14:24:22 / diddi
Eftir að hafa sofið allan laugardaginn vaknaði ég kl 0800 í morgun.
Og viti menn, haldiði að ég hafi bara ekki verið massa heppinn,
Latibær á norsku í sjónvapinu. Búið að redda deginum mínum.
Annars er það að frétta að við erum búin að skila verkefninu og
fögnuðum því á föstudaginn dem endaði með slitnu belti og tveimur
risstórum götum á nærbuxunum.
»
03.12.2006 20:13:57 / diddi
Guðberg tilnefndur til Nonino-verðlaunanna á Ítalíu
Guðberg Björnsson hefur verið tilnefndur til
hinna ítölsku Nonino-verðlauna fyrir skáldsöguna Svanurinn
sem kom upphaflega út á íslensku árið 1992 og hefur síðar komið út
víða um heim. Svanurinn heitir Il Cigno á ítölsku og hefur notið
mikilla vinsælda þar í landi, selst margoft upp og verið gefin út
bæði innbundin og í kilju.
Nonino-verðlaunin voru stofnuð í janúar 1977 af
Nonino fjölskyldunni sem hefur verið einn stærsti og virtasti
vínframleiðandi Norður-Ítalíu í meira en öld. Fjölskyldan stofnaði
til verðlaunanna sem eru álitin einhver mesta viðurkenning sem
mönnum getur hlotnast á Ítalíu.
Nonino-bókmenntaverðlaunin eru afhent síðasta
laugardag í janúar á ári hverju. Sem dæmi um þá sem hafa hlotið
Nonino verðlaun er til að mynda V.S. Naipaul, sem hlaut verðlaun
Nóbels í flokki bókmennta og Rigoberta Menchú Tum er hlaut
friðarverðlaun Nóbels.
Guðbergi Björnssyni hefur verið boðið að koma
til Ítalíu, frá 25 – 27 janúar, til að vera viðstaddur afhendingu
verðlaunanna, en mun hann hafa afþakkað boðið vegna prófa við AAU.
Frá þessu segir í tilkynningu frá JPV útgáfu.
»
28.11.2006 22:40:02 / diddi
Pabbi og mamma eru ný farin frá mér og eru á leið til Halldórs í
Litháen og ég ætla að leyfa mér að blóta í færslunni til lýsinga.
Djöfull elska ég Honey Nut Cheerios. Gamla settið kom með HNC,
Cocoa Puffs og síðast en alls ekki síst heldur best í heimi Peter
Pan Chrunchy hnetusmjör. Þetta er svo andskoti helvíti gott að ég
þarf varla að koma heim um jólin nema þá rétt til að opna nokkrar
pakka lufsur.
Eitthvað fannst GS að ég lifði eitthvað fábrotnnu lífi þannig að
þau keyptu frystikistu og fylltu kvikindið að kjöti og öðru
góðgæti. Nú þarf ég sennilega bara að kaupa smjör og bjór þangað
til að ég útskrifast. Is nice.
Ég er víst kominn í bekkpressukeppni við svarta manninn aka Hjört
þar sem úrslit ráðast næsta sumar. Held ég þurfi að setja reminder
á þetta svo að ég gleymi þessu ekki. FOKK ÉG MISSTI AF TWO AND A
HALF MAN. En það er Scrubs, þannig að þetta reddast. En ég mun
vinna strákinn, hann var jú jarðaður í hommakeppninni sem hægt er
að nálgast
hér.
Ég ætla snúa mér að því að ná mér í magapínu með ofáti á HNC.
»
22.11.2006 12:19:27 / diddi
Ég er búinn að henda inn myndum af ferðinni til Hadsund á sjóskíði.
»
21.11.2006 21:32:13 / diddi
Sheeeet, var að hjóla í dag og það var alveg suddalega kreisí. Ekki
hægt að líkja þessu við saur missinn á sunnudaginn. Tók svona létt
á því á stökkpöllunum, tókst reyndar að hjóla beint inn í runna og
tré eftir fyrri pallinn og datt því bara fram af seinni, ái.
Tók nokkrar myndir þegar vel lá á mér, sem ég er búinn að henda
inn. Þetta eru minni fælar svo að sumir verði ekki pirraðir því
þeir hafa svo hæga tengingu.
Albúmið heitir Lundby
Krat
»
Síður:
1 2 3 ...
10